Vetur og kuldi og líf mitt með MND
Aðrir bloggarar
30.03.2006 17:50:41 / steingeir

Jarðarför

Mamma verður jarðsungin í Reykholtskirkju laugardaginn 1. apríl kl. 14:00 og jarðsett í Borgarneskirkjugarði. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hennar er bent á MND félagið.

Kveðja, börnin.


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.03.2006 15:52:48 / steingeir

Sunnudagurinn 26 mars

Elsku mamma okkar Steinunn Geirsdóttir kvaddi þennan heim um hádegisbil í dag eftir hetjulega baráttu við hinn illvíga sjúkdóm MND. Við þökkum þeim fjölmörgu sem hafa fylgst með mömmu og veitt henni og okkur styrk á erfiðum tímum.

Kær kveðja börnin hennar


» 37 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 22:13:04 / steingeir

FIMMTUDAGUR

Líðan mömmu er svipuð og hefur verið. Hún er ótrúleg baráttukona. Við þökkum kærlega fyrir allar heimsóknirnar og stuðninginn sem þið hafið veitt okkur öllum. Við viljum enn biðja ykkur um að senda kveðjur, því við lesum þær alltaf fyrir mömmu.

Kveðja, börnin.


» 22 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 22:34:27 / steingeir

MÁNUDAGUR

Mömmu þykir vænt um allar kveðjurnar sem hún er búin að fá, við lesum þær fyrir hana. Það er gaman að sjá hversu margir hafa kíkt á síðuna. Líðan mömmu er enn óbreytt en hún er mjög máttfarin. Starfsfólkið á líknadeildinni er yndislegt og gerir allt sem það getur svo henni líði sem best.

Kveðja frá börnunum.


» 20 hafa sagt sína skoðun

19.03.2006 12:57:23 / steingeir

SUNNUDAGUR

Mamma er á líknadeildinni í Kópavogi, hún kom hingað á föstudag. Hér er frábært starfsfólk. Mömmu hefur hrakað mikið. Endilega skrifið komment til hennar, henni finnst gaman að við lesum þau fyrir hana.

Kveðja frá börnunum.


» 15 hafa sagt sína skoðun

16.03.2006 19:02:16 / steingeir

FIMMTUDAGUR

Ég er ennþá innlögð í Fossvoginum. Það er ennþá svo mikið slím ofan í mér að ég er að kafna stundum. það kom eitthvað akkút upp á líknadeildinni, svo ég kemst ekki að þar fyrr en eftir helgi. Því er nú verr og miður, en það er svooooo gott að vera þar.Hér er stjanað við mig en ég er súrefni daginn út og inn og líka á nóttuni.

BROSTU FRAMAN Í HEIMINN þÁ MUN HEIMRINN  BROSA FRAMAN Í ÞIG HEIMURINN FRAMAN Í ÞIG         


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2006 17:52:33 / steingeir

MÁnUDAGUR OG INNLÖGN Í FOSSVOG...

Elín keyrði mig út og suður, hún er sko betri en engin. Fyrst fórum við upp í Fossvog og svo í aðótek að sækja lyf og svo heim og svo aftur í Fossvog og heim aftur. Hingað kom kona til að gera þjónustusamning í tilefni með þrif. Ég er innlögð í Fossvog og verð þar til á fimmtudaginn, fer þá í hvíld á líknardeildina í Kópavogi. Fékk útvíkkandi lyf sem ég tek 3 á dag. Og þannig standa málin. Ein af steingeitunum sem er bókhaldari kemur til mín í kvöld og hjálpar mér með skattaskýrsluna mína hún heitir Sigurlaug. :lol:

FRESTAÐU ÞVÍ EKKI TIL MORGUNS SEM HÆGT ER AÐ GERA Í DAG.


» 3 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 17:57:54 / steingeir

SUNNUDAGUR OG ENN ER HVÍTT YFIR ÖLLU...

Ég lá í rúminu til klukkan 10.30 í morgun, svaf fremur illa í nótt slímið að halda fyrir mér vöku... En á morgun stendur það til bóta, ég á að fá betablokkara til að þynna slímið, ég vona að það virki á mig. Munnvatnið flýtur eins og því sé borgað fyrir að fljóta.:(  Það er brekka hérna á móti og krakkarnir una glöð við snjóinn, það sá ég í morgun að þau voru að renna sér glöð og kát í snjónum. En ekki er ég eins hress með snjóinn, vil heldur hafa regn á rúðum eða sól, glaða sól. :lol:  Það er farið að blæða úr vörunum á mér svo mikið þurrka ég þær.Á morgun fæ ég konu heim til að gera þjónustusamning um þrif hér á bæ, ég er farin að missa máttinn til að þrífa. Svo kemur Monique sjúkraþjálfarinn og Lauga kemur annað kvöld til að hjálpa mér með skattaskýrluna

DAUÐINN ER LÍTIL ÞJÁNING Í SAMANBURÐI VIÐ LÍFIÐ.


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.03.2006 17:55:01 / steingeir

LAUGARDAGUR OG HVÍTUR SNJÓR....

Það snjóaði í gærkvöld og hvít hula lagðist yfir borg og bí. Reyndar spáði rigningu, en ekkert varð að henni, því er nú verr og miður, en krakkarnir kætast er kemur snjór. Esjan er hvít frá toppi til táar. Reyndar er regn á rúðunum. Sonur minn kom og þáði kaffisopa hjá mér og nammi með kaffinu, alltaf nóg til af því... Ég hef verið að fylgjast með frjálsum íþróttum í Rússlandi, það er virkilega gaman. Ég lagði mig í 1 tíma. Píparinn kom og lagaði stífluna í vaskinum...:lol:

Nú skil ég stráin sem fönnin felur-og fann þeirra vetrarkvíða.

Þeir vita það best sem vin sinn þrá-hve vorsins er langt að bíða. Davíð Stefánsson

ENGIN SÓTT ER SEM ÁSTIN. ENGINN ÓVINUR JAFNAST Á VIÐ HEIMSKUNA, ENGINN ELDUR Á VIÐ HEIFTINA OG ENGIN GLEÐI ER ÆÐRI VISKUNNI.


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 16:53:44 / steingeir

FÖSTUDAGUR OG LÆKNISFERÐ...

Varð svo södd eftir morgunmatinn að ég lagði mig í 1 tíma. Svona er að borða yfir sig. Fór til læknis og hún lét mig á ný lyf og seretide diskus ég veit ekki hvernig það verkar, en hlýt að finna út úr því. Hún kom meira að segja dóttur minni Bryndís Hrund að hjá sér... En það hefur verið algjör skortur á læknum hér í Hafnarfirði en er nú að rætast úr komin ný heilsugæslustöð í Firðinum. En ég fæ hvíldarinnlögn þann 16 mars á fimmtudegi í 1 viku, það er gott að hvíla sig frá amstri daganna. :lol:  Ég var eins og unglingur þegar ég kom frá þeim síðast, svo ung og spræk..... Dísa systir mín kom í fyrrakvöld og færði mér ljóðabók hungr míns hjarta og 2 sokka og englamynd, en ég er jú að safna englum.

FORTÍÐIN ER UPPSPRETTA ÞEKKINGAR OG FRAMTÍÐIN ER UPPSRETTA VONAR. ÁST Á FORTÍÐINNI FELUR Í SÉR TRÚ Á FRAMTÍÐINNI.


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 17:13:22 / steingeir

FIMMTUDAGUR OG SKARÐSHEIÐIN ALHVÍT....

Myndin var svooooooo langdregin að mig langaði að ganga út í hléi. En gerði það ekki. Hingað kom hjúkrunarkona að nafni Guðlaug í dag klukkan 13, hún bauðst til að redda mér lækni á morgun sem hún og gerði ég á að mæta klukkan 14.40 í hlustun. :lol: Og á að mæta á landspítalann í Fossvogi á mánudag klukkan 11 til að reyna að þynna slímið, það er ólseigt, ég get varla kyngt því. Næ því upp með tissue. Gott verður að þynna þennann óþverra, og hana nú. Svaf í einum dúr í 2 tíma í dag, alltaf gott að halla sér og nú er ég komin með heimaþjónustu kemur hingað á mánudaginn til að gera þjónustusamning. Ég ætla að biðja hana að skúra og gera gluggana hreina og etv vaskinn og baðið. Og segi amen eftir efninu... :lol:

AÐ HEILSAST OG KVEÐJAST ÞAÐ ER LÍFSINS SAGA.


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.03.2006 16:33:21 / steingeir

MIÐVIKUDAGUR OG HEFUR SNJÓAÐ TÖLUVERT Í ESJUNA...

Sonur minn Einar Geir kom í heimsókn og þáði 2 brauðsneiðar hjá mér og kaffi, hann er svo mikið fyrir kaffi. Maður skyldi líka ætla það hann vinnur svooooo mikið. :lol: Ég lagði mig 2 sinnum í dag, en ég á von á pípara á morgun vaskurinn í eldhúsinu er stíflaður. Ég læt ykkur vita hvernig bíómyndin er á morgun blóðbönd, en við Jóhanna Soffía ætlum á hana og einnig Magga tengdamóðir dóttur minnar.Einnig fékk ég að vita að hjúkrunarkonan sem ég er vön að fá kemur ekki og ný kemur í staðinn, alltaf einhverjar breytingar, en mér líka ekki breytingar, vill alltaf fá þá sömu... En það er ekkert við því að gera, komi það sem koma skal. Við sonur minn ráðgerum ferð þegar vorar undir Eyjafjöllin, það er svo fallegt þar þegar vorar.

LISTIN ER LÖNG, LÍFIÐ ER STUTT.

                           Höskuldur...

Þegar vorar vaknar þrá - vænkast hagur bænda,

má í hilling hesta sjá - með Höskuld góða frænda.


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 18:20:22 / steingeir

ÞRIÐJUDAGUR OG RIGNING...

Fór í klippingu og svo renndum við mæðgurnar Jóhanna Soffía og dætur hennar Silja Rós og Ástrós Birta til Grindavíkur. Þar var vel tekið á móti okkur og ég fékk fisk heim með mér frá Leif, alltaf gott að eiga fisk í frystinum handa krökkunum. :lol:  Þó ég geti ekki lengur borðað fisk, þá þótti mér hann alltaf svooooooooo góður.En ég gleymdi slöngunni heima og þá var ekki hægt að nota sonduna í Grindavík, en ég finn aldrei til hungurs. :cry: Hlustaðu á regnið hlustaðu það fellur þétt.En það var hálka í morgun og það hefur snjóað í Esjuna og Bláfjöllin. Ef þetta væri snjór sem hefði komið í stað rigningar þá væri allt ófært.... Við erum heppin að svo er ekki.

ÞAÐ ER TIL LÍTILS AÐ SKVETTA VATNI Á SYNDINA......


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.03.2006 16:40:40 / steingeir

MÁNUDAGUR OG JARÐSKJÁFTI....

Bryndís Hrund var að læra og ég svaf en vaknaði upp við jarðskjálftann laust fyrir 15, það má segja að ég hafi vaknað upp við vondan draum. Sjúkraþjálfarinn kom og gaf mér bank og nudd á auma vöðva..Það var mjög notalegt. :lol:  En svo fór dóttir mín til sinnar vinnu. Ég á tíma í klippingu á morgun, ekki seinna vænna krullurnar að komast út um allt, ég er eins og villimaður um hárið. :haha: Svo er lost í kvöld aldrei missi ég af honum, en hann er að verða töluvert ruglingslegur. Svo er það bíóferð á miðvikudaginn en þá ætlum við mæðgurnar að fara að sjá blóðbönd og tengdamamma Jóhönnu Soffíu. En það er töluvert varið í myndina er mér tjáð.... En ég er núna sprengsödd eftir sonduna, ég fæ mér aukreitis einn næringardrykk með og maður verður svoooooo saddur af honum

RÉTTAST ER AÐ LÁTA HEILRÆÐIN GANGA ÁFRAM TIL ANNARRA. ÞAU NÝTAST SJALDNAST MANNI SJÁLFUM.


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 17:24:09 / steingeir

SUNNUDAGUR OG SÓLIN GYLLIR FJÖLLIN....

Krakkarnir fóru á Wig Wam tónleikana í gærkvöld, þau skemmtu sér konunglega, :lol:  Hingað kom dóttir mín Jóhanna Soffía og Pétur Smári með dætur sínar þær Silju Rós og Ástrós Birtu. Ég sofnaði í 1 tíma eftir það, alltaf gott að blunda smá. :lol:  Munnvatnið rennur sem aldrei fyrr, ekkert lát á því. Krakkarnir fóru og keyptu 8 pakka af tissue. Svo er síðasti bærinn í dalnum á stöð 1 í kvöld, ég ætla ekki að missa af þeim þætti. Alltaf gaman af Íslenskum myndum, sama hvort þær eru stuttar eða langar. Hún byrjar 20.10 og svo er krónikan á eftir henni danskur þáttur sem segir frá 4 dönum á 25 ára tímabili. Ég ætla svo sannarlega að horfa á hana. :lol:

ÞVÍ Í DÖGG LÍTILLA HLUTA FINNUR SÁLIN MORGUNN SINN OG ENDURNÆRIST.


» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 19